Magnús Þór Gylfason yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar hefur sett parhús sitt við Einarsnes á sölu. Húsið er afar sjarmerandi og í húsinu á hver hlutur sinn stað.
Húsið var byggt 1963 og er 221 fm að stærð. Húsið var teiknað af Sigvalda Thordarsyni. H
Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum að utan og innan. Falleg gróin lóð. Stór timburverönd með skjólvegg er í garði.
HÉR er hægt að skoða húsið nánar.
Tréverkið í garðinum er vandað og veitir mikið skjól.
Gestasalernið er flísalagt í hólf og gólf.
Gengið er tvær tröppur niður í stofuna.
Stiginn á milli hæða er sjarmerandi.
Stofan er búin fallegum húsgögnum. Ljósin í loftinu eru frá Tom Dixon.
Hér sést betur hvernig stofan stallast.
Húsbóndaherbergið er veglegt.
Eldhúsið er opið inn í stofu.
Inni í eldhúsinu er borðkrókur.
Í svefnherberginu eru upprunalegir skápar með tekk-hurðum.
Sjarmerandi barnaherbergi.
Baðherbergið er svarthvítt í orðsins fyllstu merkingu.