Risastórt glæsihýsi Opruh Winfrey

Eins og sjá má er nýja húsið hennar Opruh engin …
Eins og sjá má er nýja húsið hennar Opruh engin smásmíði. Skjáskot Popsugar

Oprah Winfrey festi sér kaup á nýju húsi á dögunum. Að sjálfsögðu er húsið hið glæsilegasta en þar er meðal annars að finna vínkjallara sem rúmar 1.600 flöskur, heitan pott, sánu og neðanjarðargöng sem liggja að nálægri skíðalyftu.

Húsið, sem staðsett er í skíðabænum Telluride, er rúmir 800 fermetrar að stærð og metið á 14 milljónir Bandaríkjadala sem samsvarar rúmum 1,8 milljörðum íslenskra króna.

Fleiri myndir má sjá á vef Popsugar.

Það er ekki amalegt að setjast niður með heitt kókó …
Það er ekki amalegt að setjast niður með heitt kókó að skíðaferð lokinni og ylja sér við opinn eld. Skjáskot Popsugar
Heiti potturinn rúmar sjö manns, og ekkert er hægt að …
Heiti potturinn rúmar sjö manns, og ekkert er hægt að setja út á útsýnið. Skjáskot Popsugar
Eldhúsið er rúmgott og vel tækjum búið.
Eldhúsið er rúmgott og vel tækjum búið. Skjáskot Popsugar
Hátt er til lofts og vítt til veggja í setustofunni.
Hátt er til lofts og vítt til veggja í setustofunni. Skjáskot Popsugar
Oprah lætur sér ekki leiðast, enda húsið vel tækjum búið.
Oprah lætur sér ekki leiðast, enda húsið vel tækjum búið. Skjáskot Popsugar
Hér sést bæði glitta í vínkjallarann, sem og neðanjarðargöngin sem …
Hér sést bæði glitta í vínkjallarann, sem og neðanjarðargöngin sem liggja að næstu skíðabrekku. Skjáskot Popsugar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál