Límdi margföldunartöfluna á stigann fyrir dóttur sína

Vigdís keypti tölustafina í Tiger.
Vigdís keypti tölustafina í Tiger.

„Hugmyndin var að hjálpa henni að muna margföldunartöfluna og svo líka svona upp á punt.   Taflan er gerð úr límmiðum úr korki sem ég keypti í Tiger i Danmörku," segir Vigdís Sæunn Ingólfsdóttir sem brá á það ráð að setja margföldunartöfluna á stigann heima hjá sér fyrir 12 ára dóttur sína, Dagnýju Evu. „Ég þurfi að kaupa slatta af pökkum til að ná öllum tölunum.“

Vigdís kveðst búa í gömlu húsi. Hún segir stigann upp á efri hæðina vera orðinn lúinn þannig að tölustafirnir lífga bara upp á hann. „Við ætlum ekki að mála hann á næstunni og því ákvað ég að setja margföldunartöfluna á tröppurnar svo að dóttir mín geti æft sig á henni þegar hún fer upp í herbergið sitt.

Vigdís, sem er búsett í Danmörku, hefur gaman af því að finna sniðugar lausnir og gera heimilið fínt. Til að mynda bjó hún til hundabæli fyrir hundinn Öskju úr gömlum laukkassa.

Dagný Eva í stiganum.
Dagný Eva í stiganum.
Hundurinn Askja á þetta fína bæli sem búið er til …
Hundurinn Askja á þetta fína bæli sem búið er til úr gömlum laukkassa.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál