Vill fjóra milljarða fyrir húsið

Gwen er að selja.
Gwen er að selja. Skjáskot af Vimeo/AFP

Sex mánuðum eftir að söngkonan Gwen Stefani skildi við Gavin Rossdale er húsið sem þau eitt sinn bjuggu saman í komið á sölu. Ásett verð er upphæð sem nemur tæpum fjórum milljörðum króna.

Húsið, sem er 1.100 fermetrar, keyptu þau hjón árið 2006 fyrir 1,5 milljarð króna. Það hefur að geyma sjö svefnherbergi samkvæmt upplýsingum af vef Elle Deceor. Því fylgir einnig stærðarinnar sundlaug, tennisvöllur og líkamsræktarstöð svo fátt eitt sé nefnt.

Þess má geta að húsið var eitt sinn í eigu söngkonunnar Jennifer Lopez.

Lóðin sem húsið stendur á er ansi tilkomumikil.
Lóðin sem húsið stendur á er ansi tilkomumikil. Skjáskot af Vimeo
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál