Endurinnréttaði heimili foreldra sinna

Mila Kunis.
Mila Kunis. mbl.is/AFP

Leikkonan Mila Kunis tók íbúð foreldra sinna í gegn í samstarfi við Houzz. Hún segir foreldra sína ekki hafa viljað flytja í annað hús og þess vegna ákvað hún að breyta íbúðinni. 

Kunis segir að íbúðin hafi verið eins og í Miami Vice árið 1994, full af leðurhúsgögnum. Hún ákvað að opna rýmið þannig að móðir hennar fengi almennilegt eldhús en hún átti það til að einangrast inni í eldhúsi við eldamennskuna. 

Foreldrar Kunis fengu að vita að þau þyrftu að fara úr íbúðinni í sex vikur en vissu ekki alveg af hverju. Þau voru þó að vonum ánægð þegar þau sáu útkomuna. 

Svona leit íbúðin út fyrir breytingarnar.
Svona leit íbúðin út fyrir breytingarnar. skjáskot/Houzz.com
Heimilið er mun léttara eftir breytingarnar.
Heimilið er mun léttara eftir breytingarnar. skjáskot/Houzz.com
Eldhúsið er mun stærra og bjartara en það var.
Eldhúsið er mun stærra og bjartara en það var. skjáskot/Houzz.com
Gamla sófasettið fékk að fjúka.
Gamla sófasettið fékk að fjúka. skjáskot/Houzz.com



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál