Sjáið myndir af heimili Beyoncé

Hús fjölskyldunnar er glæsilegt.
Hús fjölskyldunnar er glæsilegt. mbl/samsett

Húsið sem Beyoncé, Jay-Z, Blue Ivy og nýfæddu tvíburarnir búa í er 150.000 fermetra villa í Malibu í Kaliforníu samkvæmt Daily Mail.

Hjónin leigja húsið sem kallast „La Villa Contenta“ á rúmlega 40 milljónir króna á mánuði og verður fjölskyldan þar þangað til í lok ágúst. Fjölskyldan flutti inn á miðvikudag í seinustu viku með tvíburana beint af spítalanum. 

Villan er 10 herbergja, 14 baðherbergja, með innisundlaugum, 8 metra útisundlaug með útsýni yfir Kyrrahafið. 

Fjölskyldan flutti frá New York til Kaliforníu fyrr á árinu og dvelur í þessu húsi þangað til þau finna draumaheimilið.

Nágrannar villunnar eru meðal annars Julia Roberts, Caitlyn Jenner og Pamela Anderson. Einnig var húsið notað mikið í bíómyndum og sjónvarpsþáttum eins og True Blood, I love you man og Funny people.   

Lóðin er 2,6 hektarar.
Lóðin er 2,6 hektarar. mbl/priceypads
Húsið er mjög falið og erfitt að keyra að því.
Húsið er mjög falið og erfitt að keyra að því. mbl/priceypads
Í húsinu eru tvö herbergi með innilaugum sem heita Venus …
Í húsinu eru tvö herbergi með innilaugum sem heita Venus og Neptune. mbl/priceypads
Í húsinu er meðal annars bíóherbergi, bókasafn og líkamsræktarsalur.
Í húsinu er meðal annars bíóherbergi, bókasafn og líkamsræktarsalur. mbl/priceypads
mbl/priceypads
Við hliðina á útidyrahurðinni er 2.500 ára gömul ljónastytta sem …
Við hliðina á útidyrahurðinni er 2.500 ára gömul ljónastytta sem fannst undir Vesuvius-fjalli á Ítalíu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál