Svart eldhús setur svip sinn á huggulega íbúð við Blönduhlíð í Reykjavík og er hálfpartinn opið inn í stofu. Í eldhúsinu eru hvítar flísar á milli skápa. Innréttingin sjálf er höldulaus og setur stórt ljós úr messing svip sinn á eldhúsið.
Í næsta herbergi er stofan og er opin í gegn með stóru dyraopi. Stofan sjálf er máluð í bláum tón sem skapar hlýleika og mýkt.
Í íbúðinni er húsgögnum fallega raðað upp eins og sést á myndunum.