Byggði sitt eigið hús út frá Pinterest

Diane Keaton fékk hugmyndir á Pinterest þegag hún hannaði hús …
Diane Keaton fékk hugmyndir á Pinterest þegag hún hannaði hús sitt. ljósmynd/Imdb

Óskarsverðlaunaleikkonan Diane Keaton er mikil áhugakona um hönnun og byggði hún sér nýverið hús frá grunni. Keaton er að gefa út bókina „The House that Pinterest Built“ sem fjallar meðal annars um hvernig hún notaði Pinterest við hönnun hússins. 

Í bókarlýsingunni segir að þegar Keaton ákvað að byggja sitt eigið hús frá grunni fékk hún það ráð frá vinkonu sinni, leikstjóranum Nancy Meyers, að nota Pinterest til þess að fá innblástur. Á síðunni fann hún bæði nytsamlegar lausnir og flottan stíl. 

Nýja húsið er múrsteinshús og lýsir hún því sem blöndu af hlöðu og verksmiðju. Baðherbergið minnir til að mynda á gamla verksmiðju og er mikið um grófa og stóra muni í húsinu eins og til dæmis ljósin. Keaton virðist hafa unnið heimavinnuna á Pinterest vel því húsið er afar smekklega hannað. 

Klukkan setur sterkan svip á húsið.
Klukkan setur sterkan svip á húsið. ljósmynd/Lisa Romerein
Grófleiki einkennir húsið.
Grófleiki einkennir húsið. ljósmynd/Lisa Romerein
Ljósin gefa sterkan svip.
Ljósin gefa sterkan svip. ljósmynd/Lisa Romerein
Alvöru Pinterest-baðherbergi.
Alvöru Pinterest-baðherbergi. ljósmynd/Lisa Romerein
Verksmiðjuáhrifin eru sýnileg.
Verksmiðjuáhrifin eru sýnileg. ljósmynd/Lisa Romerein
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál