Stílhrein og smart lína

Ása Gunnlaugsdóttir og Brynhildur Ingvarsdóttir.
Ása Gunnlaugsdóttir og Brynhildur Ingvarsdóttir.

Hríma II / White Frost II er nýjasta skartgripalínan frá asa™. Kraftur íslenskra jökla er innblástur hönnunarinnar; sprungið yfirborð þeirra þegar þeir skríða fram birtist í silfrinu.

Vörulínan er byggð á fyrstu vörulínu asa, sem hefur um árabil verið ein af vinsælustu vörulínum íslenska hönnunarfyrirtækisins, sem hannar og markaðssetur skartgripi undir vörumerkinu asa™.

„Þessi nýja lína er sú tólfta sem við framleiðum undir vörumerkinu en eldri Hrímalínan hefur verið mjög vinsæl í gegnum árin. Ferðamenn hafa sérstaklega verið hrifnir af mynstrinu og tengingu þess við íslenska náttúru. Það var skemmtileg áskorun að útfæra hana á nýjan hátt nú þegar við erum farin að selja meira á erlenda markaði,“ segir frumkvöðullinn Ása Gunnlaugsdóttir, en fyrirtækið hefur verið í aukinni útrás til Norðurlanda síðastliðið ár.

Skartgripir asa™ byggja á norrænni hönnunarhefð, íslenskri náttúru og sterkri hönnunar- og fagþekkingu þeirra aðila sem hanna vörulínur fyrirtækisins. Ása segir að gull- og silfursmíði sé rótgróið handverk en asa™ byggi engu að síður á tækni og hugviti sem sé að hluta til nýjung á Íslandi og opni dyr fyrir útflutning á íslenskri hönnun. „Það er ekki sama hvernig skartgripur er hannaður svo hann falli að magnframleiðslu,“ segir Ása, en hún hefur mikla reynslu og þekkingu á slíkri hönnun. „Að sama skapi hefur mikil vinna verið lögð í að finna traustan og vottaðan framleiðanda sem skilar vörum í hæsta gæðaflokki. Fyrirtækið er því mjög vel í stakk búið til að mæta aukinni eftirspurn með skalanlegri framleiðslu.“

Skartgripir asa™ eru seldir í helstu skartgripaverslunum á Íslandi, í völdum verslunum í Noregi og í vefversluninni www.asajewellery.com.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál