Sparaðu þér ómældan tíma næstu jól

Gott skipulag getur gert kraftaverk.
Gott skipulag getur gert kraftaverk.

Gott skipulag getur einfaldlega gert kraftaverk en þegar kemur að því að pakka jólaskrautinu eru flestir búnir að fá sig fullsadda af jólunum og því sem þeim fylgir og eiga það því til að rífa allt niður með látum og hrúga öllu saman í kassa. Það kemur hinsvegar að því fyrr en seinna að kassarnir verði teknir upp á nýjan leik og þá kemur að skuldadögum. Sjáðu við sjálfum þér í eitt skipti fyrir öll og leggðu nokkrar auka mínútur á þig og pakkaður skrautinu sómasamlega niður.

Á heimasíðunni www.goodhouekepping.com má finna nokkrar frábærar hugmyndir að því hvernig best er að pakka skrautinu niður.

Eggjabakka má nota undir hina ýmsu smá hluti. Raðaðu jólakúlunum …
Eggjabakka má nota undir hina ýmsu smá hluti. Raðaðu jólakúlunum til dæmis í eggjabakka og raðaðu eggjabakkanum snyrtilega ofan í kassa. Pinterest
Varðveittu jólakertin í skókössum. Settu bréf eða dagblöð á milli …
Varðveittu jólakertin í skókössum. Settu bréf eða dagblöð á milli þeirra svo að þau verði ekki fyrir hnjaski. Pinterest.
Þessi hugmynd er einfaldlega frábær. Raðaðu jólatréskrautinu uppá einfalda spítu …
Þessi hugmynd er einfaldlega frábær. Raðaðu jólatréskrautinu uppá einfalda spítu og þú munt ekki sitja yfir risa stórri flækju þegar kemur að því að skreyta að ári. Pinterest.
Skipulag og aftur skipulag. Það er án efa betri fjárfesting …
Skipulag og aftur skipulag. Það er án efa betri fjárfesting að kaupa nokkra litla kassa til að raða jólaskrautinu í eftir skipulagi en að þurfa að kaupa allt nýtt að ári þegar þú áttar þig á því að það er allt í klessu.
Litlir pokar sem hægt er að loka eru fullkomnir undir …
Litlir pokar sem hægt er að loka eru fullkomnir undir litla smádótið sem oft fer illa í stóru kössunum með öll hinu. Pinterest.






Stóra jólaseríumálið er eitthvað sem að allir þekkja af eigin …
Stóra jólaseríumálið er eitthvað sem að allir þekkja af eigin raun. Og eflaust hafa margir gefist upp við það að reyna að leysa flækju síðasta árs. Gefðu þér nokkrar mínútúr í að vefja henni skipulega utan um pappa eða annað sniðugt til að koma í veg fyrir þetta vesen á næsta ári. Pinterest.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál