Margnota matur

Dýrindis kjúklinga- og linsubaunasalat

„Þetta er stórsniðugur réttur vegna þess að hann getur bæði verið aðalréttur en svo má líka nota hann sem meðlæti með t.d. kjöti eða fiski“, segir Ingvar Már Helgason um kjúklinga- og linsubaunarétt sem hann eldar í þættinum Gott, hollt og ódýrt sem sýndur er hér á MBL Sjónvarpi. Ingvar segir að auk þess að nota hann sem meðlæti geti fólk einnig borðað hann í vefjum. Rétturinn er hræódýr en matur fyrir fjóra kostar innan við 1000 krónur.

Hægt er að horfa á þáttinn hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert