c

Pistlar:

2. desember 2013 kl. 19:54

Valentína Björnsdóttir (valentina.blog.is)

Verum góð.

Nú er það myrkrið sem umlykur litlu eyjuna okkar hér í norðrinu. Það fylgir því einhver von að hugsa til þess að eftir nokkrar vikur byrjar daginn að lengja á ný. Í dag er þessi tími árs mér kærkominn, en hann var það ekki alltaf. 

Ég lét allt þetta jólaglingur og vesen fara í taugarnar á mér og sá ekki tilganginn með þessu. Mig langaði mest að komast sem lengst frá þessu öllu saman kulda, myrkri, blankheitum og jólalögum.
Ég fann hvorki fegurð né frið í þessu og mig grunar að það séu margir sem geta tekið undir þetta með mér. Það getur verið svo erfitt að ætlast til of mikils af sjálfum sér og eiga að standa undir væntingum sem oftar en ekki er búið að planta inn í kollinn á fólki. Eins og til dæmis með auglýsingaflóði sem segir okkur hvernig við eigum að vera og gera. Í stað þess að finna sína eigin leið í leitinni að hinu góða og skapa sér þá tilveru sem nærir mann innanfrá.

Ein jólin fyrir langa löngu dó mamma mín. Mér er minnisstæður þessi síðasti jólaundirbúningur sem við áttum saman, hvað henni var mikið í mun að kaupa pakka handa öllum og senda jólakort til sem flestra. Ég var frekar hissa á hvað hún var hress því venjulega var þetta erfiður tími fyrir hana. Ég get aldrei vitað hvort hún var búin að ákveða að þetta væru hennar síðustu dagar - en ég er þakklát fyrir að hafa átt þá með henni. Það var sárt að missa hana og sorgin dvaldi með mér heillengi.
Sagt er að tíminn lækni öll sár, kannski geir hann það að einhverju leyti. Með tímanum lærði ég að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt og í hjarta mínu lifir minningin um elsku mömmu en ég óska þess oft að dagarnir hennar hefðu ekki verið svona dimmir.
Það er einmitt i minningu hennar sem ég skrifa þennan pistil. Eftir því sem tíminn leið frá andláti hennar ákvað ég með sjálfri mér að velja lífið og gera allt sem í mínu valdi stæði til að hafa það fallegt og innhaldsríkt.

Ekki hefur það alltaf gengið upp en fer batnandi. Eitt af því sem ég var þó staðráðin í og það var að eiga alltaf falleg jól henni til heiðurs. Þar hefur mér tekist vel upp og það snýst ekkert endilega um að sótthreinsa heimilið og fylla alla dalla af smákökum. Þetta snýst meira um að fanga stemninguna og fylla hjarta sitt að auðmýkt og þakklæti fyrir að fá að ganga inn í ljósið einn hring enn.
Nú elska ég jólin og ekki síður aðventuna. Fyrir mér er þetta tími til að hægja á ferðinni, finna friðinn innra með mér og rækta andann. Það er fátt yndislegra en að eiga góðrar stundir með sínu fólki svo það er um að gera að nota þær stundir sem gefast til að hittast og vera saman. Kertaljós og hjartaknús er allt sem þarf. Verum góð við hvort annað líka þá sem við þekkjum ekki neitt og munum að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt eins og skáldið sagði.

Upphaflega átti þetta að fjalla um rauðrófur, eða rauðbeður eins og mamma var vön að kalla þær.
Mamma bjó alltaf til rauðkál fyrir jólin sem ég elskaði og svo gerði hún líka rauðbeður sem ég elskaði ekki jafn mikið, en borðaði samt af því að þetta var partur af jólunum. 
Í seinni tíð hafa rauðrófur komist í tísku, sem er vel því þær eru meinhollar og það er auðvelt að matreiða þær. Ég mæli sérstaklega með þessu ljúffenga rauðrófu salati.

4 rauðrófur
Sirka 20 valhnetur
1 pera ekki of þroskuð
1-2 msk balsamic edik
1 msk ólífuolía
1 appelsína
Mjúkur geitaostur eftir smekk
Klettasalat.
Sítrónusafi eftir smekk

Aðferð:

Stingið nokkur göt í rauðrófurnar og bakið þær með hýðinu á í sirka 1 ½ klst við 160 gráður.
Bakið valhnetur í leiðinni í um það bil síðustu 5 mínúturnar. 
Látið kólna.
Afhýðið rauðrófuna og peruna og skerið í passlega bita og setjið í skál.
Blandið saman safa úr einni appelsínu, balsamicediki og ólífuolíu og hellið yfir rauðrófurnar.
Setjið ruccola saman við svo valhnetur og geitaost.
Kreistið smá sítrónusafa yfir allt saman í restina
Þetta salat er upplagt að bera fram sem smárétt eða sem meðlæti með Hnetusteik    
Valentína Björnsdóttir

Valentína Björnsdóttir

Áhugamanneskja um lífsins lystisemdir og heilsusamlegt líferni. Framkvæmdarstjóri Móður Náttúru sem framleiðir grænmetisfæði fyrir stóreldhús og á neytendamarkað.

Meira