Högni Egilsson, Sigurjón Sighvatsson, Birna Rún Gísladóttir, Jakob Frímann Magnússon og Daddi diskó voru í stemningu þegar ÚTÓN voru með sína árlegu kynningu á íslenskri tónlist fyrir tónlistarstjóra sem sjá um innkaup á tónlist fyrir sjónvarp, auglýsingar og bíómyndir í Los Angeles í síðustu viku.
Í ár var blásið til samvinnu við synchtank sem er forrit sem er notað af fagfólki í geiranum og gerir íslenska tónlist ennþá aðgengilegri til skoðunar og innkaupa. Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi og konsúll í Los Angeles, bauð fólk velkomið og kynnti Sigtrygg Baldursson framkvæmdastjóra ÚTÓN / IMX (Iceland Music Export) sem kynnti síðan verkefnið og þau tónlistaratriði sem fram komu, en það voru hljómsveitin Samaris og síðan Högni Egilsson, sem flutti eigin lög.