Svona heldur þú kynlífinu spennandi

Það er ýmislegt hægt að gera til að halda langtímasamböndum …
Það er ýmislegt hægt að gera til að halda langtímasamböndum spennandi. dailymail.co.uk

Þú þarft ekki að finna þér nýjan bólfélaga í hverri viku til að halda stuðinu í svefnherberginu gangandi. Á heimasíðu Shape má finna fjögur ráð sem fólk getur nýtt sér til að halda kynlífinu í langtímasamböndum spennandi. Ráðin koma frá Emily Morse sem veit eitt og annað um kynlíf en hún er kynlífsfræðingur og stýrir útvarpsþætti sem heitir Sex With Emily. Í þeim þætti fjallar Emily um samskipti kynjanna, kynlíf og öllu sem því tengist.

Vertu djörf

„Þegar líður á sambandið hættir fólk gjarnan að reyna að ganga í augun á makanum og þetta er ein ástæða þess að sumu fólki fer að leiðast í langtímasamböndum,“ segir Morse. Morse mælir með að henda víðu náttbuxunum til hliðar. „Hvort sem þú klæðir þig upp í svakaleg nærföt frá Victoria‘s Secret eða ert einfaldlega í látlausum brjóstahaldara og þveng, allt sem er tilbreyting sendir makanum þínum þau skilaboð að þú sért að leggja þig fram.“

Farðu út úr svefnherberginu

Það að stunda alltaf eins kynlíf á sama staðnum verður leiðinlegt til lengdar. „Ef þú heldur þig yfirleitt við svefnherbergið, prófaðu þá að færa þig yfir í sófann eða í bakgarðinn eða jafnvel á hótelherbergi,“ segir Morse. „Vertu hvatvís bjóddu ástríðunni aftur heim.“

Undirbúðu þig

Já, það er gaman að vera hvatvís en stundum er nauðsynlegt að undirbúa sig, sérstaklega um langtíma samband er að ræða að sögn Morse. „Það er mikilvægt að leggja sig fram reglulega.“ Morse stingur upp á að taka t.d. óvænt á móti makanum í kynþokkafullum undirfötum.

Prófaðu hlutverkaleik

Sumir eru hræddir við að prófa hlutverkaleik að sögn Morse. „Í sannleika sagt þá munt þú kannski flissa í fyrstu. En um leið og þú kemst yfir ákveðna hindrun þá kemst þú að því að hlutverkaleikir halda spennunni í sambandinu.“ Morse mælir með að leika kynþokkafullt kynlífsatriði úr bíómynd eftir.

Hlutverkaleikir eru sagðir hafa góð áhrif á kynlífið.
Hlutverkaleikir eru sagðir hafa góð áhrif á kynlífið. Af vef London Fire Brigade
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál