Sumarið er „erfiður tími hjá mörgum“

Kristín Linda sálfræðingur skrifar um sumarlífið í sínum nýjasta pistli.
Kristín Linda sálfræðingur skrifar um sumarlífið í sínum nýjasta pistli. Getty Images

„Sumarið er tími sælu, ævintýra og upplifana, eða er það ekki? Fram undan er hin víðfræga verslunarmannahelgi sem er, samkvæmt orðræðunni í fjölmiðlum, einstakt tækifæri til hópsamveru sem allir taka þátt í. Umfjöllunin er slík að þeir sem ekki ætla á einhvers konar þjóðhátíð, bæjarhátíð eða viðburð upplifa auðveldlega að þeir séu hornreka í samfélaginu. Að þeir séu ekki að njóta lífsins eins og annað fólk, að þeir hafi ekki burði til, eða nái ekki, að skapa sér tækifæri til að taka þátt í því sem er eftirsóknarvert og mikilvægt og séu bara hálfmisheppnaðir. Margir upplifað þessa tilfinningu aftur og aftur á sumrin, tilfinninguna allir eru að gera það gott nema ég,“ skrifar sálfræðingurinn Kristín Linda í sinn nýjasta pistil.

„Já, sumarið er yndislegt en sannarlega erfiður tími hjá mörgum. Dagskipulagið sem ríkir hjá einstaklingum, fjölskyldum og í samfélaginu frá miðjum ágúst og fram í júní riðlast. Breytingarnar ná ekki aðeins til skóla og vinnu heldur líka samskipta fólks, félags- og menningarlífs, neyslu, fjárhags og hversdagslegra viðburða. Sumarlífið reynir á stöðu á vinnumarkaði. Hefur þú vinnu, er hún tímabundin eða föst, er vinnuálagið skaplegt eða einmitt allt of mikið á sumrin, hefur þú svigrúm og getu til að taka sumarfrí? Sumarlífið reynir líka á efnahagslega stöðu. Áttu peninga til að fara dag eftir dag í sund, fara til Spánar eða Danmerkur, borga þig inn á Bræðsluna eða Þjóðhátíð? Sumarlífið reynir á fjölskyldustöðu og fjölskyldutengsl, aðrar félagslegar tengingar og samskiptanet. Er einhver í tengslanetinu þínu sem vill fara með þér í útilegu, gönguferð eða á Sumar á Selfossi? Hefur þú kraft, kjark og löngun til að fara einn? Tilheyrir þú hópi, áttu maka, börn eða foreldra sem þú getur eða vilt njóta lífsins með? Gengur það vel eða er það flókið og snúið?“

„Við skulum ekki taka því sem sjálfgefnu að allir eigi einhvern að. Að allir hafi félagsskap sem heldur gegnum sumardagana. Sumarið er einmitt tíminn þegar fólk upplifir missi, einsemd, afskiptaleysi og tengslaleysi sárar en ella. Þegar tómleiki, depurð og vansæld með eigin stöðu í lífinu sækir þungt að. Ef þú finnur sterkt fyrir einmanaleika, tapi og leiða skaltu muna að þú ert ekki einn í þeirri stöðu. Það eru ekki allir hinir í stuði að undirbúa einhvers konar verslunarmannahelgarhátíð og þessir dagar líða eins og aðrir. Hlúðu að sjálfum þér og njóttu þess smáa góða sem er í hverjum degi lífsins.“

„Þeir sem eru einmitt núna í góðu stuði og virkilega að njóta ævintýra sumarsins, gætu aftur á móti auðveldlega auðgað eigið líf og annarra með því að bjóða einhverjum sérstaklega að vera með. Hluti af því að vera góð manneskja er að muna eftir öðru fólki, bæði í sorg og sælu. Vera til staðar og gefa kost á sér ekki bara á erfiðu stundunum heldur líka þeim fjörugu og góðu.“

„Bjóddu einhverjum að njóta þess að upplifa og vera með þér núna!“

Kristín Linda Jónsdóttir.
Kristín Linda Jónsdóttir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál