Krúttlegasta afmælispartý ársins

París, Kleopatra, Coco, Aþena og Boston í afmælispartýinu.
París, Kleopatra, Coco, Aþena og Boston í afmælispartýinu.

„Við höldum alltaf smá „afmælispartý“ fyrir voffana, þá fá þeir alltaf það sem þeim þykir best. Til dæmis harðfisk, Greenies-bein og kex sem er keypt í Ameríku,“ segir hin 22 ára Tinna Björk Stefánsdóttir sem hélt nýverið afar krúttlegt afmælispartý fyrir hundinn sinn Coco sem er fimm ára. 

Tinna og móðir hennar eiga fimm hunda saman og allir mættu þeir í boðið og skemmtu sér vel. „Kleopatra er elst, hún er 10 ára, Aþena er 8 ára, Boston og París eru 6 ára og svo er það afmælisprinsessan hún Coco sem er 5 ára," segir Tinna spurð út í aldur hundanna. Hún segir þá alla vera ólíka. „Hver og einn er með sinn karakter og sína sérþarfir, en þeim semur öllum vel,“ segir Tinna að lokum.

Það var gómsætt hundanammi á boðstólnum.
Það var gómsætt hundanammi á boðstólnum.
Afmælisvoffinn.
Afmælisvoffinn.
Tinna Björk er 22 ára nemi í Reykjavík Makeup School.
Tinna Björk er 22 ára nemi í Reykjavík Makeup School.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál