Hún prófar ekki „hjólbörurnar“ aftur

Hin 31 árs Erin mun ekki prófa stellinguna hjólbörurnar aftur.
Hin 31 árs Erin mun ekki prófa stellinguna hjólbörurnar aftur.

Á vef Womens Health má lesa frásagnir nokkurra kvenna um kynlífsstellingar sem þær munu aldrei prófa aftur. Ástæðurnar eru fjölbreyttar en hver annarri vandræðalegri. Meðfylgjandi saga er frá konu sem mun seint prófa „hjólbörurnar“ aftur vegna neyðarlegs atviks sem hún lenti í með manninum sínum.

„Eitt kvöldið (eftir slatta af víni) ákváðum við hjónin að prófa stellinguna „hjólbörurnar“. Ég skellti mér í armbeygjustellingu og hann lyfti fótleggjunum mínum upp svo ég gæti vafið þeim um mittið á honum. Ég ýtti rassinum upp og þetta var gott fyrir okkur bæði. En þegar hann greip utan um búkinn minn þrýsti hann á þvagblöðruna og ég pissaði. Út um allt. Þetta drap stemmninguna og tilhugsunin um þessa stellingu kemur mér úr stuði,“ skrifaði hin 31 árs Erin.

Það eru ekki allar kynlífsstellingar eins skotheldar og trúboðinn.
Það eru ekki allar kynlífsstellingar eins skotheldar og trúboðinn. Getty images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál