Klámmyndastjarna vonlaus í rúminu

Klámstjarnan Keiran Lee.
Klámstjarnan Keiran Lee.

Lesendur Smartlands þekkja hugsanlega ekki mikið til Keiran Lee en hann mun vera mjög þekktur í klámmyndabransanum. Í nýju viðtali sem Sun tók við Lee kemur meðal annars fram að hann hafi sængað hjá yfir 1.000 konum vegna vinnunnar og hafi hann tekið upp myndir í fjölda landa.

Lee er kvæntur fyrrverandi klámmyndastjörnunni Kirsten Price. Kynntust þau í vinnunni við töku á kynlífssenu. Einhverjir gætu haldið að mikil reynsla þeirra hjóna valdi því að kynlíf þeirra sé burðugt á heimavígstöðvunum.

Lee segir svo alls ekki vera og viðurkennir fúslega í viðtalinu að hann sé vonlaus í rúminu. Þar haldi hann ekki út í meira en tvær mínútur að hámarki. Blaðamanni Sun virðist einhverra hluta vegna koma þetta á óvart. Það er þó hugsanlega ekki skrýtið þó að Lee sé lítið fyrir kynlíf eftir vinnu en hann lýsir því meðal annars að upptaka á hverju atriði taki um þrjár klukkustundir og á senunni séu ekki færri en 30 starfsmenn. Magn og gæði fara greinilega ekki alltaf saman í þessum efnum.

Lee og Price eiga saman barn en framtíðarplön þeirra hjóna eru að hætta alfarið afskiptum af klámbransanum áður en barnið kemst á þann aldur að lesa sér til um atvinnu foreldranna. Margt annað fróðlegt kemur fram í viðtalinu en m.a. hefur Lee tryggt lim sinn fyrir 1.000.000 dollara enda um mikilvægt vinnutæki að ræða. HÉR er hægt að lesa viðtalið í heild sinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál