Nældi sér í 30 árum yngri mann

Eric Langley og Jill Carpenter.
Eric Langley og Jill Carpenter.

Eric Langley og Jill Carpenter eru ástfangið par. Það væri ekki fréttnæmt nema fyrir þær sakir að á þeim er 30 ára aldursmunur, konan fimmtug en karlinn tvítugur.

Töluvert hefur verið fjallað um þau í heimabæ þeirra í Bandaríkjunum og er mikill áhugi á sambandi þeirra. Flestir sem hitta þau saman á förnum vegi telja þau mæðgin en ekki par eða allt þar til þau hefja kossaflandur og knúsast á almannafæri.

Skötuhjúin kynntust á netinu eins og algengt er en Carpenter féll strax fyrir þroskuðum húmor snáða. Hann er í námi sem stendur en Carpenter rekur dýraathvarf.

Ætli það þætti jafnfréttnæmt ef aldursmunurinn væri á hinn veginn, þ.e.a.s. ef maðurinn væri 30 árum eldri?

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál