5 leiðir til þess að bæta kynlífið

Það er mikilvægt að gefa sér tíma fyrir kynlíf.
Það er mikilvægt að gefa sér tíma fyrir kynlíf. Ljósmynd / Getty Images

Það er mikilvægt að hugsa vel um sambandið og þar spilar kynlíf stóran þátt. Men's Fitness tók saman nokkur einföld atriði sem geta kynt undir ástarblossann. 

Stefnumótakvöld

Haldið áfram að fara á stefnumót þótt þið séuð búin að vera saman í mörg ár. Farið á stefnumót utan veggja heimilisins einu sinni í viku.

Verið utan þjónustusvæðis

Slepptu síma, neti og sjónvarpi í 30 mínútur og njóttu þess að vera með maka þínum. Þið getið fengið ykkur drykk, þvegið hvort öðru í sturtu hreinlega nýtt tímann og talað saman svo lengi sem þið haldið augnsambandi.

Einbeittu þér að því góða, ekki því slæma

Ef þú horfir bara á það neikvæða í hinum aðilanum þá er sambandið ekki að ganga nógu vel. Rannsóknir sýna að þeir sem einbeita sér að því jákvæða í fari maka síns og eru duglegir að hrósa eru í betri ástarsamböndum.

Sýnið að þið kunnið að meta hvort annað

Gremja myndast þegar öðrum aðilanum finnst eins og honum sé tekið sem sjálfsögðum hlut. Taktu nokkrar mínútur í að gera húsverk sem hinn aðilinn gerir vanalega.

Stundið kynlíf

Takið frá að minnsta kosti einn klukkutíma fyrir kynlíf og reynið að gera eitthvað nýtt. Hvort sem það eru nýjar stellingar eða ný kynlífsleikföng.

Það getur verið gott að slökkva á netinu á kvöldin.
Það getur verið gott að slökkva á netinu á kvöldin. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál