Kærastinn dró fram handjárn í rúminu

Ung kona leitar ráða því kærasti hennar bað um skrýtna …
Ung kona leitar ráða því kærasti hennar bað um skrýtna hluti í rúminu. mbl/thinkstock

Ung kona leitar ráða hjá ráðgjafa Elle eftir að nýi kærasti hennar bað um skrýtna hluti í rúminu.

Kæra E. Jean. Ég er byrjuð að hitta frábæran mann. Hann er fyndinn, í góðri vinnu, með fallegt bros og kemur fram við mig með virðingu. Við kynntumst í gegnum sameiginlega vini og höfum verið að hittast í mánuð. Við höfum ekki sofið saman enn, en þegar við vorum að kúra um daginn fórum við að tala um fyrrverandi bólfélaga. Allt í einu dregur hann fram handjárn undan rúminu og segist elska að vera bundinn í kynlífi.

Ef ljósin hefðu verið kveikt hefði hann séð áfallið í svipnum mínum. Handjárnin voru bara við rúmið. Ég er ekki tepra, en ég er ekki á þeim stað í lífinu þar sem ég er tilbúin að brjótast út úr þægindaramma mínum í kynlífi. Á ég að halda áfram í þessu sambandi ef þetta lætur mér líða svona óþægilega? – Ég er ekki tilbúin fyrir 50 Shades of Grey.

Jean ráðleggur stúlkunni að gera ekkert sem henni finnst óþægilegt að gera.

Segðu honum að ef hann lofar að setja enga pressu á þig þá muntu kannski geta gert þetta með honum seinna meir, þegar þú ert tilbúin.  

Konan er ekki tilbúin að prófa öðruvísi hluti í rúminu.
Konan er ekki tilbúin að prófa öðruvísi hluti í rúminu. mbl/thinkstock
Ráðgjafi Elle ráðleggur fólki að gera ekkert sem það er …
Ráðgjafi Elle ráðleggur fólki að gera ekkert sem það er ekki tilbúið í að gera. mbl/thinkstock
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál