Reiknaðu út hversu mikið kynlíf þú stundar

Svona lítur kynlífsreiknivélin út.
Svona lítur kynlífsreiknivélin út. skjáskot/Slate.com

Margir velta því fyrir sér hversu oft sé eðlilegt að stunda kynlíf og þó svo að það sé að sjálfsögðu ekkert rétt svar við því eru til upplýsingar um meðaltalið. Nú hefur Slate búið til svokallaða kynlífsvél sem er eins konar reiknivél með gagnagrunni um hversu oft fólk stundar kynlíf. 

Kynlífsvélin er afar einföld í notkun. Fyrst er sleginn inn aldur, síðan hversu oft maður stundaði kynlíf á síðustu 12 mánuðum, þar eru valmöguleikarnir allt frá aldrei yfir í oftar en fjórum sinnum í viku. Að lokum er hakað við hvort að kynlífsfélaginn sé maki eða fastur bólfélagi eða ekki. 

Blaðamaður sló inn 35 ára aldur og að kynlíf hafði verið stundað einu sinni í viku með kynlífsfélaga. Niðurstöðurnar má sjá á myndinni hér að ofan. En svo virðist að 35 ára einstaklingur sem stundar kynlíf einu sinni í viku með föstum bólfélaga sé bara á nokkuð góðu róli. 

Hér má finna reiknivélina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál