Sefur hjá mömmu besta vinar síns

Ungur maður er hræddur um að segja vini sínum óvart …
Ungur maður er hræddur um að segja vini sínum óvart frá sínu stærsta leyndarmáli. mbl.is/Thinkstockphotos

Ungur maður leitar ráðgjafa The Sun vegna þess að hann stundar kynlíf með móður besta vinar síns. Hann er stessaður yfir því að hann muni missa þetta út úr sér við vin sinn.

Kæra Deirdre. Ég er háður því að stunda kynlíf með mömmu besta vinar míns.  Ég hræðist það eins og heitan eldinn að missa þetta út úr mér við hann þegar við erum að djamma.

Við erum 19 ára og kynntumst fyrir þremur árum. Mamma hans er 39 ára en lítur út fyrir að vera helmingi yngri. Hún er í svakalegu formi og ótrúlega falleg. Hún er betri en allar stelpur á mínum aldri sem ég veit um.

Ég eyði miklum tíma heima hjá honum þar sem mamma hans leyfir honum að drekka áfengi og halda partý.

Þetta byrjaði þegar ég fór að sækja símann minn heim til þeirra því ég gleymdi honum þar í einu partýinu. Vinur minn var í vinnunni og mamma hans bauð mér inn í kaffisopa.

Ég sagði henni hvað mér þætti hún kynþokkafull og hún kyssti mig á kinnina. Næsta sem ég vissi er að við byrjuðum að kyssast. Hún sagðist hafa verið hrifin af mér lengi.

Við stunduðum kynlíf og það var engu öðru líkt. Ég var með mikið samviskubit eftir á en hún sendi mér SMS og sagði að þetta hafi verið frábært.

Nú hringir hún í mig í hvert sinn sem hún er ein heima. Við notum ekki smokka lengur og ég er hræddur um að ég gæti gert hana ólétta. En ég get aldrei sagt nei við hana.

Vinur minn spurði mig um daginn hvort eitthvað væri að, því hann sagði að ég léti skringilega. Hann sagði líka um daginn þegar við vorum að drekka að ég hafi endalaust verið að biðja hann fyrirgefningar.

Mun sektarkenndin mín koma upp um mig?

Deirdre segir manninum að hætta samstundis að sofa hjá konunni þar sem vinur hans muni að öllum líkindum komast að því og slíta vinskapnum.

Af hverju í ósköpunum ertu að sleppa smokknum og taka þessa áhættu? Sérðu ekki stórslysið sem það yrði?

Er pabbi vinar þíns inni í myndinni? Jafnvel þótt hún sé einstæð móðir, ef hún yrði ólétt, þá kæmist upp um leyndarmálið ykkar og sonur hennar yrði niðurbrotinn.

Þú veist að þú myndir missa hann sem vin og fæla frá þér restina af vinahópnum.

Eina leiðin er að hætta þessu. Segðu henni að þessu verði að slútta. Einbeittu þér frekar að því að kynnast einhverjum sem þú getur deilt sambandi með í almenningi.

Deirdre hneykslast yfir því að maðurinn noti ekki smokka með …
Deirdre hneykslast yfir því að maðurinn noti ekki smokka með konunni og taki því áhættuna á að gera hana ólétta. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál