10 staðir sem þú þarft að stunda kynlíf á

Sturtan er tilvalin staður fyrir kynlíf.
Sturtan er tilvalin staður fyrir kynlíf. mbl.is/thinkstockphotos

Þó svo það sé þægilegt og notalegt að stunda bara kynlíf uppi í rúmi er gott að breyta stundum til. Kynlífs- og sambandssérfræðingurinn Emily Morse fór yfir kynlíf utan svefnherbergisins með Women's Health

Morse segir að það geti gert fólk nánara hvort öðru að stunda kynlíf annars staðar en í svefnherberginu auk þess sem það hjálpar fólki að finna út úr því hvað kveiki í því. Með því að stunda kynlíf annars staðar en inni á heimilinu fjarlægist fólk þá hluti sem gerir það stressað og á fólk það til að vera enn æstara. 

Hún segir að það sé mikilvægt að hafa það í huga að kynlíf utan heimilisins snúist meira um nýja og spennandi upplifun frekar en frábæra fullnægingu. 

Úti í garði

Morse segir að garðurinn sé tilvalinn staður fyrir þá sem vilja stunda kynlíf utandyra án þess að það sjáist til þeirra. Það fer þó vissulega eftir görðum hvort fólki geti sleppt því að hafa áhyggjur af því hvort að það sjáist til þeirra. 

Í sófanum

Kannski hafa flestir prófað þetta en Morse mælir engu að síður með sófanum í stofunni. Hún mælir með því að konur setji púðana undir bakið sem hjálpi til við fullnægingu eða halli sér á hlið sófans í hundinum. 

Á hóteli

„Hótelkynlíf er frábært af því það þarf ekki að þrífa eftir sig. Þú getur bara tékkað þig inn og þetta getur bara snúist um kynlíf,“ segir Morse. Hún mælir með að fólk fari út fyrir þægindarammann og prófi sig áfram í hlutverkaleikjum á hótelherberginu. 

Í stiganum

Það er mælt með því að fólk nýti sér stiga í standandi hundi. 

Heima hjá vini

Dyggur lesandi síðunnar mælti með því að stunda kynlíf heima hjá vini. Í tilviki lesandans voru veggirnir svo þunnir að parið þurfti að passa sig að hafa hljótt og það gerði allt mun meira æsandi. 

Í sturtunni

Það er mælt með því að sturtan sé tekin fram yfir bað eða sundlaug. Vert er að hafa í huga að hafa með sér sleipiefni og jafnvel vatnsheldan titrara. 

Á viðburði 

Hvort sem það er brúðkaup, íþróttaviðburður eða grillveisla þá er eitthvað við það að stunda kynlíf á almenningsviðburði mjög æsandi að mati Morse. Hún mælir með klósetti eða skáp sem er hve lengst í burtu frá fólkinu. 

Fyrir framan spegil

Dyggur kvenlesandi sagði það mjög æsandi að stunda kynlíf í hundinum fyrir framan spegil þar sem þá getur hún séð bæði sig og maka sinn. 

Í bílnum 

Erótíski rithöfundurinn Sabrina Lacey mælir með því að stunda kynlíf í bíl. Hún mælir með því að leggja á rólegum vegi og hefja leik. 

Á ströndinni

Morse mælir með strönd þar sem að ströndin sé svo rómantískur staður. Hún mælir þó með því að fólk taki með sér handklæði til þess að koma í veg fyrir að sandurinn fari á staði sem fólk vill ekki fá sand á. 

Það getur verið æsandi að stunda kynlíf í bíl.
Það getur verið æsandi að stunda kynlíf í bíl. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál