30 daga kynlífsáskorun

Kynlíf í sturtunni er á listanum.
Kynlíf í sturtunni er á listanum. mbl.is/thinkstockphotos

Það er vel þekkt að fólk setji sér 30 daga áskoranir, hvort sem það er að planka á hverjum degi eða reyna að taka þátt í sykurlausum eða plastlausum september. Reddit-notandi deildi 30 daga kynlífsáskorun. 

Í athugasemd við innleggið skrifar manneskjan sem setti áskorunina inn að þetta væri ekki lagalegur samningur þannig að ef makinn vill ekki gera eitthvað hefur hann neitunarvald og byggist áskorunin á samþykki. Markmiðið er að fara út fyrir þægindarammann. Ef misst er úr bætist aukadagur við, áskorunin nær þó ekki lengur en 40 daga. 

Hér er 30 daga áskorunin eins og hún leggur sig og hvetur Smartland að sjálfsögðu lesendur til að prófa. 

Dagur 1: Stunda kynlíf á öðrum tíma en rétt fyrir svefn. Í hádeginu, á morgnana eða eftir æfingu. 

Dagur 2: Fara yfir lista eða bók með kynlífsstellingum eða horfa á kama sutra-myndband saman. Velja nokkrar nýjar stellingar til að prófa. Vertu viss um að segja maka þínum það sem þér finnst líta út fyrir að vera unaðslegt og af hverju. Haltu þig við auðveldu stellingarnar. Engin ástæða að meiðast á degi tvö. 

Dagur 3: Stunda kynlíf tvisvar sama dag. 

Dagur 4: Lesið erótíska sögu saman fyrir kynlíf. Finnið góða sögu á netinu og hver og einn velur stutta sögu. 

Dagur 5: Kynlíf í sturtunni. Notið mikla sápu en farið varlega. Ráðlagt er að nota sleipiefni sem þolir vatn. 

Dagur 6: Gefið heilnudd áður en kynlífið byrjar. 

Dagur 7: Einn stuttur, tíu mínútur eða minna. Prófið skemmtilegan stað og tíma, til dæmis á meðan það er verið að undirbúa morgunmatinn inni í eldhúsi. Bónus stig: Tveir eða fleiri stuttir drættir á einum degi. 

Bílakynlíf er vert að prófa.
Bílakynlíf er vert að prófa. mbl.is/Thinkstockphotos

Dagur 8: Bílferð, kelið eða stundið kynlíf í bílnum. Hægt er að fara heim eftir á og stunda kynlíf þar. Ekki brjóta lögin. Gerið það þess vegna í bílnum inni í bílskúr. 

Dagur 9: Stunda kynlíf sitjandi á stól eða sófa, andlitið að og frá. 

Dagur 10: Nautnafullt nudd með olíu fyrir kynlíf. Mælt er með handklæðum eða gömlum rúmfötum. 

Dagur 11: Bara munnmök. Láttu maka þinn vita hvað virkar fyrir þig og haldið áfram þangað til hápunkti er náð. Ekkert 69. 

Dagur 12: Leyfðu konunni að stjórna. Segðu maka þínum hvað þú vilt. Bónus stig: Reipi eða handjárn. 

Dagur 13: Engar samfarir en konan fær manninn til að fá fullnægingu með höndum, munni eða öðrum líkamshluta: Bónus stig: Notaðu brjóst eða fætur. 

Dagur 14: Finndu nýjan stað í íbúðinni til þess að stunda kynlíf á. Eldhús, baðherbergi, stofa, stóll, sófi, gólf og svo framvegis. 

Deilið fantasíum.
Deilið fantasíum. mbl.is/Thinkstockphotos

Dagur 15: Báðir aðilar veita sjálfum sér fullnægingu sitjandi fyrir framan maka sinn, samtímis er fullkomið. Deildu því hvernig þér líður. Notaðu það sem þú vilt. Fylgstu með og lærðu. 

Dagur 16: Kama sutra fyrir lengra komna. Finndu tvær eða þrjár erfiðar stellingar til þess að prófa. Aftur, forðastu meiðsli. 

Dagur 17: Notaðu kynlífsleikföng. Finndu út hvað virkar. Bónus stig: Nota kynlífstæki fyrir pör. 

Dagur 18: Horfið á klám saman. Bónus stig: Fróið ykkur sjálfum eða makanum eða stundið kynlíf. 

Dagur 19: Kynlíf án samfara. Hendur, líkami, kynlífsleikföng, munnur. 

Dagur 20: Deilið fantasíum ykkar með því að senda tölvupóst. Veljið eina til að framkvæma. Bónus stig: Búningar. 

Ekki sofa bara í rúminu.
Ekki sofa bara í rúminu. mbl.is/Thinkstockphotos

Dagur 21: Farið í hjálpartækjabúð. Bæði verða að kaupa eitthvað, leikföng, kynlífsleiki, myndbönd eða bækur. 

Dagur 22: Hann fullnægir henni án samfara. Aðeins má nota hendur, munn eða kynlífsleikföng. 

Dagur 23: Andið rólega, njótið þess að stunda kynlíf. 

Dagur 24: Kynlífsleikur. Finndu eitthvað skemmtilegt til að leika með. 

Dagur 25: Rólegt kynlíf. Stundið hægari samfarir en vanalega, hægt og örugglega. Þetta á að taka langan tíma. 

Dagur 26: Leyfðu honum að ráða, gerðu það sem hann segir. Bónus stig: Reipi eða handjárn. 

Dagur 27: Farið út að borða og snertið hvort annað undir borði. Ekkert ólöglegt þó. Farið síðan heim eða á hótel og stundið kynlíf. 

Dagur 28: Raðfullnægingadagur. Taktu því rólega eftir fullnægingu en byrjaðu síðan aftur. Ein er ekki nóg. 

Dagur 29: Kastið upp á hver á að stjórna. Segðu maka þínum að gera það sem hann vill en verið viss um að hafa öryggisorð. Reynið að fara út fyrir þægindarammann. 

Dagur 30: Vakið alla nóttina eða eins lengi og þið getið og stundið kynlíf. Stundið eins mikið kynlíf og þið getið. Kannið það sem er í uppáhaldi og reynið að fá það fimm sinnum. 

Bónus dagur 31: Kelið og hafið samfarir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál