Hafa ekki haft samfarir í 10 ára löngu sambandi

Konan vill ekki hafa samfarir.
Konan vill ekki hafa samfarir. mbl.is/Thinkstockphotos

Karlmaður sem hefur aldrei haft samfarir með kærustu sinni leitaði ráða hjá Deidre, ráðgjafa The Sun

Kæra Deidre, ég er búinn að vera með kærustunni minni í tíu ár en við höfum aldrei raunverulega stundað kynlíf. Við höfum átt góða tíma og gert ýmislegt kynferðislegt en höfum aldrei komið okkur að því að hafa samfarir. 

Við kynntumst þegar ég var 18 ára og hún var 17 ára. Þá fannst henni ekki rétt að stunda kynlíf. Einu sinni sagði hún að hún vildi það ekki af því ég þyrfti að fara í klippingu. 

Ég held að hún sé ekki hrifin af mér. Vinir mínir hitta stelpur á Tinder og þeir eru oftast búnir að stunda kynlíf með þeim á innan við mánuði. 

Deidre telur vandamálið ekki vera það að kærastan sé ekki hrifin af kærastanum, líklegra er að hún hræðist samfarir. 

Hún gæti hafa heyrt hræðslusögur þegar hún var ung. Talaðu við hana og segðu að sambandið lifi þetta ekki af, enginn gæti það. Spurðu hana hvað hún hræðist. Það er líklegt að þið þurfi sérfræðing til þess að finna út úr þessu. Ef þú elskar hana er það þess virði. 

Kærustuparið hefur ekki gengið alla leið í tíu ára löngu …
Kærustuparið hefur ekki gengið alla leið í tíu ára löngu sambandi sínu. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál