Dansar ekki uppi á borðum á afmælinu

Mynd 1 af 2
Þóra Arnórsdóttir og maðurinn hennar, Svavar Halldórsson. Friðrik Tryggvason
Morgunblaðið Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is

Allt ber að þessu sinni upp á sama daginn hjá sjónvarpskonunni Þóru Arnórsdóttur sem verður 37 ára í dag.  Verðlaunahátíð Eddunnar – íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunanna er einmitt í kvöld og er Kastljósið þar nú tilnefnt til verðlauna í fyrsta sinn. Af því tilefni hyggjast Kastlýsingar gera sér glaðan dag, enda ærið tilefni til. Ætlar fólk að fara saman út að borða og með mökum telur þessi góði hópur um tuttugu manns.

„Ég er ólétt og á von á mér í byrjun maí. Eftir því sem barnið hefur stækkað hefur úthaldið minnkað og ég reikna því ekki með að dansa uppi á borðum á Eddunni langt fram eftir nóttu. Við hjónakornin eigum gjafabréf á hóteli og hyggjumst nýta okkur það um helgina; fara í skemmtilega borgarferð til Reykjavíkur. Og ég hlakka virkilega til. Það verður sem sagt ekki gert neitt stórkostlegt beint í tilefni af afmælinu. Ég geymi mér það í þrjú ár enn; fram að fertugu,“ segir Þóra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Átti hún barn fyrir 10 dögum?

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
12:55 Þóra Arnórsdóttir slær Beyoncé og Victoriu Beckham út enda komin í sitt fyrra form 10 dögum eftir barnsburð.   Meira »

Röddin í góðu formi eftir fæðinguna

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
í gær Óperusöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir lifir sannkölluðu heimsborgaralífi úti í Madrid, og þar er daglegt líf allt annað en hversdagslegt. Meira »

Leyfði Rihönnu ekki að heimsækja kærastann

Kim Kardashian.
07:00 Kim Kardashian vísaði Rihönnu á dyr þegar hún ætlaði að heimsækja kærastann hennar þegar hann var með tónleika í Lundúnum.   Meira »

Hundarnir á bakvakt

Charlize Theron á hjálpsama hunda.
í fyrradag Charlize Theron fær hjálp við barnauppeldið úr óvæntri átt.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is