Gifta sig í sumar á Krít

Jennifer Aniston og Justin Theroux undirbúa grískt sumarbrúðkaup. Leikkonan á ættir að rekja til Grikklands og hefur nú fundið draumastaðinn til að gifta sig, eyjuna Krít.

Orðrómur hefur verið á kreiki um að ástarsamband leikaraparsins standi á brauðfótum en samkvæmt heimildarmanni fréttavefjarins TMZ er það fjarri sanni.

Faðir Aniston, John, fæddist í bænum Chania á Krít og herma fregnir að þar ætli leikkonan að ganga í hjónaband.

„Pabbi Jennifer hefur alltaf lagt áherslu á að hún gleymi ekki uppruna sínum og rækti tengslin við Grikkland,“ segir heimildarmaður. „Krít er draumstaðurinn í hennar huga.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál