Loki á Kaffi Loka

Tom Hiddleston fer með hlutverk Loka og fann kaffihúsið Café …
Tom Hiddleston fer með hlutverk Loka og fann kaffihúsið Café Loka í gær.

Reykjavík er enn á ný að fyllast af stjörnum í tengslum við upptökur á kvikmyndinni Thor: The Dark World. 

Breski leikarinn Tom Hiddleston hefur verið á ferðinni í Reykjavík í gær og fannst greinilega afar sniðugt að rekast á Kaffihúsið Cafe Loki á Lokastíg enda fer hann með hlutverk sjálfs Loka Laufeyjarsonar í kvikmyndinni.

Það var Zachari Levi, leikarinn góðkunni sem leikur Chuck í samnefndri þáttaröð sem sýnd er á Stöð 2, sem tók myndina og birti á twittersíðu sinni í dag en Levi fer líka með stórt hlutverk í myndinni um þrumugoðið Þór.

Myndina má sjá HÉR.

Zachary Levi hefur hrifið áhorfendur en hann leikur Chuck í …
Zachary Levi hefur hrifið áhorfendur en hann leikur Chuck í samnefndum þáttum sem sýndir eru á Stöð 2.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál