Útilokar ekki lýtaaðgerðir

Cat Deeley er öruggari með sig í dag heldur en …
Cat Deeley er öruggari með sig í dag heldur en þegar hún var 20 ára. AFP

Sjónvarpsstjarnan Cat Deeley útilokar ekki að fara í lýtaaðgerðir í framtíðinni til að standast þau viðmið varðandi útlit sem sett eru í skemmtanabransanum.

Hin 37 ára Deeley verður þó öruggari með árunum að eigin sögn og þykir hún kynþokkafyllri í dag heldur en þegar hún var tvítug. Hún útilokar þó að láta breyta sér með fegrunaraðgerðum seinna meir.

„Það eru settar miklar útlitskröfur á konur í nú til dags en mér finnst ég kynþokkafyllri í dag heldur en þegar ég var 20 ára. Þetta snýst allt um sjálfstraust og ég finn ekki fyrir þessu endalausa óöryggi í dag. En ef eitthvað mun trufla mig í framtíðinni þá mun ég ekki útiloka lýtaaðgerð.“

„Ég get hreyft augabrúnirnar á mér þannig að ég hef ekki enn látið undan bótoxi sem, sagði Deeley sem lýtur alltaf vel út. „Ég reyni að stunda líkamsrækt á hverjum degi. Bara í um 45 mínútur á dag,“ segir Deeley sem kveðst stunda fjölbreyttar æfingar til að halda sér í góðu formi.

Cat Deeley er alltaf glæsileg.
Cat Deeley er alltaf glæsileg. AFP
Cat Deeley stundar líkamsrækt á hverjum degi.
Cat Deeley stundar líkamsrækt á hverjum degi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál