Með bleikar neglur á afmælisdaginn

Bruce lét lakka neglur sínar bleikar í tilefni afmælisdagsins.
Bruce lét lakka neglur sínar bleikar í tilefni afmælisdagsins. Ljósmynd/X17online.com

Fyrrum íþróttakappinn og raunveruleikastjarnan Bruce Jenner varð 65 ára gamall í fyrradag, og í tilefni dagsins skartaði hann bleikum lökkuðum nöglum. Þá vekur einnig athygli að Bruce sást með sígarettu, en hann hefur aldrei reykt og lifir mjög heilsusamlegu lífi.

Bruce hefur farið nýjar leiðir með útlit sitt síðan hann skildi við eiginkonu sína, Kris Jenner, í september í fyrra, meðal annars með því að láta hár sitt vaxa sítt. Slúðurmiðlar vestanhafs hafa jafnvel haldið því fram að hann sé að breytast í konu. 

Fyrrum eiginkona hans, Kris Jenner, var spurð í spjallþætti í síðustu viku hvað henni þætti um sögusagnirnar. „Þetta er kjánalegt,“ sagði hún og hló. „Slúðurmiðlarnir hafa sagt þetta síðan á áttunda áratugnum.“

Fregn­ir herma að Bruce sér byrjaður að deita aft­ur en hann og Kris hættu end­an­lega sam­an í októ­ber eft­ir 23 ára hjóna­band. Slúðurmiðlar halda því fram að Bruce sé að hitta góða vin­konu Kris, Ronda Kami­hira, en Kris held­ur því fram að henni sé al­veg sama hvort það sé satt eða ekki. 

„Ég veit ekki hvern hann er að hitta. Hann lætur mig ekki vita hvað hann gerir skref fyrir skref, en þetta er hans líf, og ég vil bara að hann sé hamingjusamur. Hann er ennþá faðir tveggja barna minna. Við erum vinir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál