Elín og Kostelic orðin foreldrar

Elín Arnarsdóttir og Ivica Kostelic í heimsókn á Íslandi árið …
Elín Arnarsdóttir og Ivica Kostelic í heimsókn á Íslandi árið 2012. mbl.is/Ómar Óskarsson

Elín Arnarsdóttir Kostelic og króatíski skíðakappinn Ivica Kostelic eignuðust sitt fyrsta barn í gær þegar Elín ól dreng í Zagreb þar sem þau búa. Króatíski miðillinn Story greinir frá þessu en Ivica er mjög þekktur í heimalandinu fyrir afrek sín í skíðaíþróttinni, sem og systir hans Janica. 

Í fréttinni kemur fram að Kostelic hafi greint frá barnsburðinum á facebooksíðu sinni og móður og barni mun heilsast vel.

Hjónin Elín og Ivica hafa lengi verið par en leiðir þeirra lágu saman í skíðabrekkunum fyrir mörgum árum. Ivica hefur nokkrum sinnum heimsótt Ísland en þau hafa búið saman í Zagreb síðustu árin og giftu sig á árinu.

Fjölmiðlar í Króatíu hafa í gegnum tíðina fjallað af og til um samband þeirra Elínar og Ivica og gerðu brúðkaupi þeirra til að mynda skil. 

Ivica Kostelic er sigursæll skíðamaður og hefur orðið heimsmeistari í svigi auk þess að fara á verðlaunapall á þrennum Ólympíuleikum, síðast í Sochi á þessu ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál