25 ára Brad Pitt lék í snakkauglýsingu

Brad Pitt lék í auglýsingu fyrir Pringles árið 1988.
Brad Pitt lék í auglýsingu fyrir Pringles árið 1988. youtube.com

Brad Pitt hefur ekki alltaf verið heimsfrægur kvikmyndaleikari. Nei, alls ekki. Á sínum yngri árum tók Pitt að sér hlutverk í sjónvarpsauglýsingum en ein þeirra var fyrir Pringles-snakkið vinsæla.

Í auglýsingunni má sjá sólbrúnan Pitt og tvo vini hans rúnta um í blæjubíl. Vinirnir klára því miður Pringles-snakkið sitt en fá sem betur fer smá smakk hjá þrem bikíni-klæddum dömum sem þær rekast á.

Auglýsingin kom út árið 1988 en þá var hann 25 ára gamall.

Brad Pitt hefur alltaf verið fjallmyndarlegur.
Brad Pitt hefur alltaf verið fjallmyndarlegur. youtube.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál