Frábær brjóstagjafamynd á forsíðu Elle

Fyrirsætan Nicole Trufino brýtur blað í sögu Elle.
Fyrirsætan Nicole Trufino brýtur blað í sögu Elle. www.elle.com.au

Þetta er sko engin venjuleg forsíða. Ofurfyrirsætan Nicole Trufino prýðir forsíðu júní-tölublaðs ástralska Elle. Á forsíðumyndinni má sjá Trufino gefa nýfæddum syni sínum brjóst. Þetta er fyrsta brjóstagjafamyndin sem prýðir forsíðu Elle.

Justine Cullen, ritstjóri ástralska Elle segir myndina ekki hafa verið sviðsetta. „Zion var svangur. Þegar við sáum hversu falleg þau voru saman færðum við hana bara á tökustaðinn. Við vonum að þessi mynd sýni brjóstagjöf sem eðlilegt fyrirbæri.“

Ætli free the nipple-herferðin hafi náð alla leið til Ástralíu?

Nicole Trufino ásamt syni sínum.
Nicole Trufino ásamt syni sínum. www.elle.com.au
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál