Vill ekki líta út fyrir að vera yngri en hún er

Eva Mendes nýtur þess að eldast.
Eva Mendes nýtur þess að eldast. AFP

Leikkonan hæfileikaríka Eva Mendes nýtur þess að eldast og finnur að sjálfstraustið eykst eftir því sem hún eldist. Hún greindi nýverið frá því í viðtali við Estée Edit að hún hefur ekki áhuga á að líta út fyrir að vera yngri en hún er í raun og veru því hún er örugg í eigin skinni.

„Ég tek á móti aldrinum með opnum örmum, í stað þess að berjast gegn honum. Það eru margar yngingaraðferðir þarna úti en mér líður betur í eigin skinni eftir því sem ég eldist. Ég vil vaxa með sjálfri mér.“

Mendes starfar með förðunarfræðingnum Genevieve Herr og hann farðar hana fyrir stóra viðburði. „Markmið okkar er aldrei að láta mig líta út fyrir að vera 26 ára.“

Mendes gengst ekki undir fegrunaraðgerðir til að viðhalda útliti sínu, hún segir vatnsdrykkju vera hennar helsta fegrunarráð. „Fyrir mér er mataræðið númer eitt, tvö og þrjú. Og ef þú ert ekki að drekka nóg vatn þá sést það á húðinni. Stundum gleymi ég að drekka vatn, en núna byrja ég daginn á að drekka heitt vatn með sítrónu,“ sagði Mendes sem er andlit húðvörulínunnar New Dimension frá Estée Lauder.

Vatnsdrykkja er víst galdurinn á bak við fallega húð.
Vatnsdrykkja er víst galdurinn á bak við fallega húð. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál