Leikkonan Sarah Jessica Parker, sem frægust er fyrir hlutverk sitt í þáttaröðunum Beðmál í borginni, var treg á sínum tíma við að leika tískudívuna Carrie Bradshaw. Þessu greindi leikarinn Seth Rudetsky frá í vikunni. Ástæðan fyrir trega Parker var sú að hún vildi ekki binda sig við sjónvarpsseríu, fremur taka að sér ólík hlutverk. Hún varð hinsvegar það hrifin af handriti þáttanna að hún ákvað að láta vaða.