Ástin kviknaði í Biggest Loser

Agla Steinunn og Sigurgeir eru sérlega glæsilegt par.
Agla Steinunn og Sigurgeir eru sérlega glæsilegt par. Skjáskot Facebook / Sigurgeir Jónsson

Agla Steinunn Bjarnþórudóttir og Sigurgeir Jónsson, sem bæði öttu kappi í Biggest Loser, eru nýjasta parið í bænum.

Skötuhjúin kynntust við tökur á þáttunum, en eins og frægt er orðið stóð Agla Steinunn uppi sem sigurvegari þáttanna, en Sigurgeir endaði í öðru sæti. Parið felldi síðan hugi saman eftir að keppni lauk.

Bæði eru Agla og Sigurgeir hin hressustu og segja lífið hafa gjörbreyst eftir þátttöku í Biggest Loser. Til að mynda krækti Agla nýverið í draumastarfið sem hún þorði varla að láta sig dreyma um áður en hún hóf keppni. Sjálf segist hún varla trúa því hversu mikið líf hennar hefur breyst á skömmum tíma.

Í samtali við Smartland sögðu skötuhjúin næsta mál á dagskrá vera ferð til Balí, þar sem þau ætla að slaka á og njóta lífsins saman í þrjár vikur.

Smartland Mörtu Maríu óskar Öglu og Sigurgeiri innilega til hamingju með lífið og ástina.

Alga fór úr 116,6 kílóum í 84,4 í æfingabúðum Biggest …
Alga fór úr 116,6 kílóum í 84,4 í æfingabúðum Biggest Loser á Ásbrú.
Sigurgeir fór úr 150,7 kílóum í 113,3 kíló í æfingabúðum …
Sigurgeir fór úr 150,7 kílóum í 113,3 kíló í æfingabúðum Biggest Loser á Ásbrú.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál