Pattra og Elmar eiga von á jólastrák

Parið á von á erfingja um jólin.
Parið á von á erfingja um jólin. Ljósmynd/Instagram @trendpattra

Tískubloggarinn Pattra Sriyanonge og eiginmaður hennar fótboltamaðurinn Theodór Elmar Bjarnason eiga von á sínu fyrsta barni saman um jólin. Pattra deildi innleggi á Instagram-síðu sinni í gær þar sem hún sagði Grinch geta farið að hlakka til jólanna þar sem von er á jólastrák hjá parinu.

Theodór Elmar spilar með danska félaginu AGF og stóð sig afar vel með íslenska landsliðinu í Evrópukeppninni í knattspyrnu í júní. Pattra er tískubloggari á vefnum Trendnet og er þekkt fyrir fallegan og fágaðan stíl sinn. Smartland Mörtu Maríu óskar litlu fjölskyldunni til hamingju með stækkunina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál