Xenia Deli giftist 62 ára unnusta sínum

Það var ekkert til sparað í brúðkaupinu.
Það var ekkert til sparað í brúðkaupinu. Ljósmynd/Instagram @xeniadeli

Rússneska ofurfyrirsætan Xenia Deli sem hvað þekktust er fyrir leik sinn í tónlistarmyndbandi við lagið „What Do You Mean“ með Justin Bieber gekk í það heilaga á dögunum.

Deli sem er 26 ára gömul giftist hinum 62 ára gamla Ossama Fathi Rabah Al-Sharif við hátíðlega athöfn á Sontorini á Grikklandi. Al-Sharif er egypskur viðskiptajöfur og var ekkert til sparað í veislunni. Samkvæmt heimildum Elle hefur samband þeirra Deli og Al-Sharif staðið yfir í eitt ár.

Ofurfyrirsætan klæddist afar íburðarmiklum og glæsilegum kjól eftir hönnuðinn Zuhair Murad. Trúlofunarhringar parsins eru ekki af verri kantinum en bæði skarta þau einnig LOVE-armbandi frá Cartier.

Deli deildi nokkrum myndum frá deginum á Instagram-síðu sinni. Óhætt er að segja að myndirnar tali sínu máli.

Neðst í fréttinni má sjá Deli í myndbandi Justins Biebers. 

😍🙈

A photo posted by Victoria B. (@vicabond) on Jun 4, 2016 at 10:24am PDT

❤️❤️❤️🌸🌸🌸

A photo posted by Xenia Deli (@xeniadeli) on Jun 19, 2016 at 4:10pm PDT

Kakan var afar girnileg.
Kakan var afar girnileg. Ljósmynd/Instagram @xeniadeli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál