Cindy Crawford eldist bara hreint ekki

Crawford, sem er fimmtug, hefur engu gleymt.
Crawford, sem er fimmtug, hefur engu gleymt. Ljósmynd / skjáskot Instagram

Ofurfyrirsætan Cindy Crawford hefur engu gleymt, og lítur stórglæsilega út. Á dögunum sat fyrirsætan, sem er fimmtug, fyrir í himinháum leðurstígvélum, leðurjakka og fáu öðru.

Að venju leit Crawford stórglæsilega út, en ljósmyndirnar voru hluti af leynilegri myndatöku sem Crawford og dóttir hennar tóku þátt í.

Það var ljósmyndarinn Russell James sem fór fyrir hinu háleynilega verkefni.

Stílistinn Elizabeth Sulcer, sem starfar fyrir Vogue, deildi mynd úr tökunum á Instagram.

Mæðgurnar Kaia Gerber og Cindy Crawford.
Mæðgurnar Kaia Gerber og Cindy Crawford. Ljósmynd / skjáskot Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál