Klæddist fötum fyrir 5 milljónir síðustu daga

Amal, og eiginmaður hennar George Clooney,
Amal, og eiginmaður hennar George Clooney, Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Amal Clooney er þekkt fyrir sérlega fágaðan stíl, en hún er gjarnan talin vera ein best klædda kona heims.

Undanfarnar tvær vikur hefur Clooney, sem er mannréttindalögmaður, skartað hverri hátískuflíkinni á fætur annarri en samanlagt verðmæti þeirra er 34.403 Sterlingspund eða tæplega 5,2 milljónir íslenskra króna.

Mörgum þykir klæðaburður Clooney óviðeigandi, en málin sem hún fer með um þessar mundir varða meðal annars stríðs- og kynferðisglæpi.

Daily Mail tók saman dressin sem Clooney hefur klæðst síðustu tvær vikurnar, en hér má sjá nokkur þeirra.

12. september
Clooney klæddist dragt úr smiðju Sonia Rykiel, við hana bar hún tösku frá Dolce & Gabbana og sólgleraugu frá Salvatore Ferragamo. Þess að auki var hún í skóm frá Aquazurra.

Amal á fundi með skjólstæðingi sínum, Nadiu Murad, sem haldið …
Amal á fundi með skjólstæðingi sínum, Nadiu Murad, sem haldið var í ánauð af ISIS. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

14. september
Clooney klæddist útsaumuðu pilsi frá Dolce & Gabbana, en handtaskan hennar var einnig frá sama merki. Dressið kostaði 670 þúsund krónur.

Amal Clooney, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum Vitaly Churkin og Nadia …
Amal Clooney, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum Vitaly Churkin og Nadia Murad. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

18. september
Clooney átti fund með utanríkisráðherra Ástralíu, en hún klæddist kjól frá Dior og skarti frá Kiki McDonough.

Clooney ásamt Julie Bishop, utanríkisráðherra Ástralíu.
Clooney ásamt Julie Bishop, utanríkisráðherra Ástralíu. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Sitt sýnist hverjum, mörgum þykir óviðeigandi að Clooney flaggi auð sínum og setji á svið hverja tískusýninguna á fætur annarri. Öðrum þykir klæðaburður Clooney algerlega vera hennar eigið mál.

Clooney árið 2011, áður en hún tók ástfóstri við merkjavöru.
Clooney árið 2011, áður en hún tók ástfóstri við merkjavöru. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál