Guðni Th. hjólar með börnin í Álftanesskóla

Guðni Th. Jóhannesson hjólar með börnin sín í Álftanesskóla.
Guðni Th. Jóhannesson hjólar með börnin sín í Álftanesskóla. Ljósmynd/Facebook
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, er fluttur með fjölskyldu sína á Bessastaði eftir að viðgerðum á húsinu lauk. Nú hjólar hann með börnin í skólann. Á Álftanesi ganga börn í Álftanesskóla sem er skammt frá Bessastöðum. Þar er líka ein fínasta sundlaug landsins, Álftaneskaffi og Bitakot sem eru vinsælir veitingastaðir í 225 Garðabæ. 
 
„Þá erum við fjölskyldan flutt á Bessastaði. Einstök fegurð blasti við í morgunsárið; geislar morgunsólarinnar lágt á himni, húsin á höfuðborgarsvæðinu sveipuð ljóma, stilltur hafflötur og ferskt loft, fjallahringurinn í fjarska, hrossin úti á túni, álftirnar kvakandi. Þetta er fallegt land, Ísland,“ segir Guðni Th. Jóhannesson á Facebook-síðu Forseta Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál