Heitasti afinn í bransanum

Wang er í betra formi en margir mun yngri menn.
Wang er í betra formi en margir mun yngri menn. Ljósmynd / skjáskot Youtube

Deshun Wang gekk tískupallana í fyrsta skipti þegar hann var 79 ára að aldri, og vakti frammistaða hans mikla eftirtekt.

Wang fékk fljótlega nafnbótina heitasti afi í heimi, en hann segist hafa byrjað að stunda líkamsrækt þegar hann var fertugur þó að hann hafi ekki byrjað að spá í magavöðvunum fyrr en þremur áratugum síðar.

„Margir fóru að veita mér eftirtekt eftir tískuvikuna í Kína. Sumir kalla mig heitasta afa í heimi,“ sagði Wang í viðtali við The Times.

„Sumir sögðu einnig að ég væri netstjarna. En veistu hvað, ég hef verið að búa mig undir þennan dag í 60 ár,“ segir Wang og bætir við að það sé aldrei of seint að láta drauma sína rætast.

„Það er aldrei of seint. Enginn getur aftrað þér frá því að ná árangri, þú verður bara að einsetja þér það.“

Hér að neðan má sjá viðtal við Wang, þar sem hann greinir frá því hvers vegna hann var fenginn í verkið.

Deshun Wang sló í gegn á tískupöllunum.
Deshun Wang sló í gegn á tískupöllunum. Ljósmynd / skjáskot Buzzfeed
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál