Megrunarkúrinn alger hörmung

Mariah Carey leggur ýmislegt á sig til að halda línunum …
Mariah Carey leggur ýmislegt á sig til að halda línunum í lagi. Skjáskot / Mirror

Söngdrottningin Mariah Carey leggur ýmislegt á sig til þess að halda línunum í lagi, en á dögunum greindi hún frá því að hún borðaði eingöngu próteinríka fæðu.

Söngkonan segist ekki njóta megrunarkúrsins sérstaklega, enda taki á að borða svona einhæfa fæðu.

„Þetta er reglulega erfitt. Þú myndir hata kúrinn minn, það eina sem maður borðar er norskur lax og kapers alla daga. Það er allt og sumt,“ sagði söngkonan og dæsti.

„Mér er alvara, ég reyni að halda mig við próteinríka fæðu. Þetta er hræðilegt.“

Frétt Mirror

Lax er herramannsmatur, en verður eflaust svolítið leiðigjarn ef hann …
Lax er herramannsmatur, en verður eflaust svolítið leiðigjarn ef hann er borðaður á hverjum degi. Getty images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál