Skráning hafin í Ungfrú Ísland

Arna Ýr Jónsdóttir og Egill Trausti Ómarsson.
Arna Ýr Jónsdóttir og Egill Trausti Ómarsson.

Skráning í Ungfrú Ísland er í fullum gangi og stendur út mars. Birgitta Líf Björnsdóttir, framkvæmdastjóri keppninnar, segir að keppnin sé fyrir allar þær stelpur sem langi til að upplifa ný tækifæri.

„Við leitum að stúlkum á aldrinum 18-25 ára frá öllum hornum landsins sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu skemmtilega ævintýri með okkur. Leitast er eftir að velja fjölbreyttan hóp, bæði eftir aldri, áhugasviði, og framtíðarsýn,“ segir Birgitta Líf.

Birgitta Líf Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Ungfrú Ísland.
Birgitta Líf Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Ungfrú Ísland.

Spurð af hverju stúlkur ættu að taka þátt í Ungfrú Íslandi segir Birgitta keppnina vera ótrúlega skemmtilegt ferli. „Þetta er vettvangur fyrir ungar stelpur til að upplifa nýja hluti, fá aukið sjálfstraust, eignast góðar vinkonur og opnar á ný tækifæri.“

Birgitta segir að töluverðar breytingar hafi orðið á keppninni eftir að nýir eigendur tóku við henni árið 2014. „Keppnin í dag snýst um að velja verðugan fulltrúa fyrir Íslands hönd í Miss World. Mikil áhersla er lögð á að stúlkurnar þroskist og dafni meðan á ferlinu stendur, auki sjálfstraust, taki þátt í góðgerðarstörfum, fái fjölmiðlafræðslu, fari á Dale Carnegie-námskeið, læri að koma fram á sviði og í tískusýningu, fái reynslu í fyrirsætustörfum, eignist góðar vinkonur og taki þátt í ýmsum fleiri skemmtilegum og fræðandi viðburðum yfir sumarið.“

mbl.is/Freyja Gylfa

Skráning í keppnina hófst í mars og stendur hún út mánuðinn. Stefnt er að því að lokahópurinn verði tilbúinn í maí en þá fer af stað langt ferli. „Ferlið hefst í júní og stendur það yfir í þrjá mánuði, eða fram að lokakvöldinu sem verður haldið með pompi og prakt í Hörpunni 26. ágúst.“

Skráningar fara fram í gegnum ungfruisland@ungfruisland.is og er hægt að nálgast allar upplýsingar um þær á heimasíðu Ungfrú Ísland.  

mbl.is/Freyja Gylfa
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál