Arna Ýr Jónsdóttir er 22 ára fegurðardrottning sem vann Ungfrú Ísland árið 2015. Síðan þá hefur hún tekið þátt í alls kyns fegurðarsamkeppnum um allan heim eins og Miss World í Kína, Miss EM í Þýskalandi og að lokum Miss Grand International þar sem að hún hætti í keppninni eftir að hafa verið kölluð of feit af eiganda keppninnar.
Eftir Miss Grand International tók Arna sér smá pásu frá fegurðarsamkeppnum en nú hefur hún ákveðið að taka þátt í Miss Universe Iceland sem verður haldin í Gamla bíói 25. september.
„Ég er búin að fá ágæta pásu síðan í Las Vegas og ég finn bara að mig langar að upplifa þetta einu sinni enn, sem ég fékk ekki að gera þar,“ segir Arna þegar hún er spurð að því af hverju hún hafi ákveðið að taka aftur þátt í fegurðarsamkeppni eftir allt sem hún gekk í gegnum eftir Miss Grand International.
„Ég hef alltaf lofað sjálfri mér því að um leið að þetta er ekki skemmtilegt lengur þá hætti ég,“ sagði Arna og bætti við að það hafi verið ástæðan fyrir því að hún hætti í Miss Grand International.
Arna viðurkennir að þessi reynsla hafi verið henni mjög erfið í fyrstu. „Ég fór að æfa svakalega mikið því þessi orð lágu smá á mér og ég hafði þau alltaf á bak við eyrað,“ sagði Arna en hún segist hafa síðan lært að hlæja að þessu atviki í janúar, tveim mánuðum eftir keppnina.
„Ég hef ekkert talað um þetta því mér fannst asnalegt að líða svona og ég vissi að þetta var ekkert satt,“ segir Arna. „En þetta tók smá á fyrst.“ Arna tekur það svo fram að athugasemdir um holdafar hennar höfðu áhrif á hana því hún hélt að hún væri ekki nógu góð fyrir fegurðarsamkeppnir en þær höfðu ekki áhrif á hennar daglega líf.
En nú finnst Örnu hún vera tilbúin að taka aftur þátt í fegurðarsamkeppni og ætlar að nota alla reynslu fyrri keppna til þess að gera sitt besta í Miss Universe Iceland enda myndi svona atvik aldrei gerast þar segir hún.
Arna segir muninn á milli Ungfrú Ísland og Miss Universe vera gífurlegan. „Sú sem vinnur Miss World er ljúf, blíð og jarðbundin, en Miss Universe er með sterka sviðsframkomu, eldklár og flott fyrirsæta,“ segir Arna og bætir við að Ungfrú Ísland sé ekki með sundfatakeppni eins og Miss Universe.
„Ég er ótrúlega glöð að ég tók fyrst þátt í Ungfrú Ísland því það var góður undirbúningur fyrir þetta,“ segir Arna og bætir við að það sér persónubundið hvor keppnin henti betur.
„Í Miss Universe er rosalega mikill kostur fyrir mig að það sé bikiní atriði því bikiníframkoma er sterk hlið hjá mér því ég hef fengið sjálfstraust í gegnum tvö árin með því að ganga upp á svið í bikiní og vera bara flott á því,“ segir Arna. „En fyrir aðrar stelpur er þetta kannski algjör ókostur því við erum öll ólík og höfum mismunandi kosti og galla.“
Arna segir íslenskar fegurðarsamkeppnir vera með eins góðar og þær geta þegar hún ber þær saman við erlendar keppnir. „Þetta er rosalega vel gert hérna heima. Fegurðarsamkeppnir úti eru mun ýktari.“
Hún bætir því við að henni finnist samt sem áður skemmtilegra að keppa í erlendum keppnum því að það sé mun jákvæðara umtal og meiri hvatning þar. „Það er leiðinlegt hvað allir eru að dæma og mikið af leiðinlegri umræðu hérna heima. Auðvitað fer það samt bara inn um eitt eyrað og út um hitt,“ segir Arna en neikvæð umfjöllun fer ekki fyrir brjóstið á Örnu en hún segist vera að taka þátt fyrir sig og engan annan og hún pæli ekkert í hvað öðrum finnst.
Arna viðurkennir að finna fyrir smá pressu að gera vel í keppninni en þó svo að margir af keppendum Miss Universe hafi tekið þátt áður þá er Arna sú eina sem hefur unnið fegurðarsamkeppni og er því reyndasti keppandinn. „Ég finn fyrir pressu sérstaklega frá fegurðarsamkeppnisheiminum erlendis því ég er rosalega þekkt þar,“ segir Arna en bætir við að það trufli hana ekkert. „Pressa er góð fyrir mig, ég var náttúrulega í landsliðinu í frjálsum mjög lengi og er vön pressu.“
„Að vissu leyti horfir maður á þetta sem vinnu,“ segir Arna þegar hún er spurð hvað hún fái úr því að taka þátt í fegurðarsamkeppnum. „Þegar ég vann Miss EM-keppnina þá voru sigurlaun í boði, svo fór ég út og vann fyrir þau og fékk miklu meira borgað en hérna heima,“ segir hún og bætir við að þetta sé mikið ævintýri, svakaleg lífsreynsla og tækifærin endalaus.
Arna segir þetta samt vera síðasta árið sem að hún tekur þátt í fegurðarsamkeppni þar sem hana langi að fara í háskóla og gerast ljósmóðir. „Ég ætla bara að njóta í seinasta skiptið, fara síðan bara í háskóla, eignast fjölskyldu, giftast og lifa lífinu.“