Eignuðust dóttur á frumsýningardaginn

Mikael Torfason og Elma Stefanía Ágústsdóttir.
Mikael Torfason og Elma Stefanía Ágústsdóttir. Ljósmynd/Hari

Mikael Torfason og Elma Stefanía Ágústsdóttir eignuðust dóttur á föstudaginn. Mikael missti af frumsýningunni á Guð blessi Ísland í Borgarleikhúsinu en hann er höfundur verksins ásamt Þorleifi Arnarssyni. 

„Þetta er hún Ída. Komin í fangið á stóru systkinum sínum, þeim Ísold og Jóel. Hún lét bíða eftir sér og stal senunni á frumsýningunni sem ég missti af; með ánægju. Við erum loksins komin heim í Brekkuselið. Ídu heilsast vel, sem og móður hennar. Þær eru stálhraustar og við gætum ekki verið hamingjusamari,“ sagði Mikael Torfason á facebooksíðu sinni. 

Smartland óskar hjónunum hjartanlega til hamingju með dótturina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál