Verstu kjólarnir- Rita Ora bar sigur úr býtum

Rita Ora klæddist þessum furðulega kjól frá Donna Karan í …
Rita Ora klæddist þessum furðulega kjól frá Donna Karan í Vanity Fair-partýinu sem haldið var eftir Óskarinn í nótt. AFP

Óskarsverðlaunahátíðin fór fram í nótt og þá fylgdist tískuáhugafólk um allan heim með kjólunum sem urðu fyrir valinu hjá stjörnunum. Eins og gengur og gerist mátti sjá nokkra afar mislukkaða kjóla en kjóll söngkonunnar Ritu Ora á líklegast vinninginn sem versti kjóll kvöldsins.

Rita Ora mætti í eftirpartý Vanity Fair í kjól frá Donna Karan. Kjóllinn er svartur en önnur hlið kjólsins er algjörlega gegnsæ þannig að hálfur rass söngkonunnar blasti við viðstöddum í gær.

Rita Ora er ekki eina stjarnan sem hlaut gagnrýni fyrir klæðaburð í gær. Lady Gaga þótti þá ekki líta vel út en hún mætti með rauða hanska sem minntu helst á uppþvottahanska. Fyrirsætan Irina Shayk mætti þá í afar afhjúpandi kjól sem hefur hlotið misjöfn viðbrögð. 

Söngkonan Solange Knowles og íþróttakonan Serena Williams mættu svo báðar í rauðum kjólum sem hvorugur sló í gegn hjá tískugagnrýnendum.

Rita Ora sýndi allt of mikið hold í nótt.
Rita Ora sýndi allt of mikið hold í nótt. EPA
Lady Gaga var með sérstaka hanska á Óskarsverðlaunahátíðinni.
Lady Gaga var með sérstaka hanska á Óskarsverðlaunahátíðinni. AFP
Irina Shayk klæddist kjól frá Atelier Versace í gær.
Irina Shayk klæddist kjól frá Atelier Versace í gær. AFP
Solange Knowles var að drukkna í sínum kjól.
Solange Knowles var að drukkna í sínum kjól. AFP
Íþróttakonan Serena Williams klæddist þessum kjól í Vanity Fair-partýinu, hann …
Íþróttakonan Serena Williams klæddist þessum kjól í Vanity Fair-partýinu, hann minnir helst á ódýran árshátíðarkjól. EPA
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál