Klæddist 27.000 króna strigaskóm með hæl

Skjáskot af whowhatwear.com. Amal er flott í leðurjakka.
Skjáskot af whowhatwear.com. Amal er flott í leðurjakka.

Mannréttindalögfræðingurinn Amal Clooney er alltaf flott til fara en nýverið kom hún töluvert á óvart með klæðavali því leðurjakki, rifnar gallabuxur og strigaskór með hæl urðu fyrir valinu.

Amal og George Clooney, eiginmaður hennar, sáust  saman á röltinu við tökustað kvikmyndarinnar Money Monster en Geroge fer með hlutverk í þeirri mynd. Amal heimsótti eiginmann sinn í vinnuna og klæddist strigaskóm með fylltum hæl frá Ash. Þeir strigaskór kosta 200 dollara sem gerir um 27.000 krónur

Klæðaburður Amal þennan daginn vakti athygli enda er hún tískufyrirmynd margra. Ætli þetta þýði að strigaskór með fylltum hæl séu með endurkomu?

Skóna er hægt að versla á www.saksfifthavenue.com.
Skóna er hægt að versla á www.saksfifthavenue.com. Skjáskot af whowhatwear.com./ www.saksfifthavenue.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál