Hinn 28. september árið 1999 útskrifaðist Ólafur Ragnar Grímsson af sjúkrahúsi en hann þurfti að dvelja á spítala yfir nótt eftir að hafa brotnað á öxl þegar hann datt af hestbaki. Daginn eftir birtist frétt um málið í DV og fréttinni fylgdi skemmtileg ljósmynd sem sýnir hversu samrýnd þau Ólafur og Dorrit voru.
Á myndinni má sjá hvernig Dorrit rígheldur í hönd Ólafs sem er klæddur í köflóttan jakka og ljósar buxur. Dorrit er þá sjálf með köflóttan jakka á herðunum og Kelly-tösku frá Hermés á arminum.
„Lófar þeirra voru sem eitt og takinu aldrei sleppt. Úr augum skein væntumþykja, traust, ást,“ stendur í dramatískri frétt DV um spítalavist forsetans.